Er einhver í plássinu þínu?
Undanþágunefnd er skipuð og starfar samkvæmt lögum nr. 112 frá 1984, um atvinnuréttindi skipstjórnarmanna á íslenskum skipum og lögum nr. 113 frá 1984 um atvinnuréttindi vélfræðinga, vélstjóra og vélavarða á íslenskum skipum.
Ef skortur er á mönnum með nægileg réttindi til skipstjórnar eða vélstjórnar er heimilt að veita manni, sem ekki fullnægir skilyrðum laga þessara, undanþágu til starfa á tilteknu skipi eða tiltekinni gerð skipa um takmarkaðan tíma, þó eigi lengur en 6 mánuði í senn, og skal viðkomandi útgerðarmaður eða skipstjóri sækja um undanþáguna.
Undanþágur samkvæmt 1. mgr. veitir fimm manna nefnd sem samgönguráðherra skipar til að fjalla um þess háttar mál. Í nefndinni eiga sæti tveir fulltrúar tilnefndir af fulltrúum útgerðaraðila, einn fulltrúi tilnefndur af Farmanna- og fiskimannasambandi Íslands og einn fulltrúi tilnefndur af VM, en formann nefndarinnar skipar ráðherra án tilnefningar. Ráðherra setur nefndinni starfsreglur sem hann lætur birta með fullnægjandi hætti.
Hér að neðan eru tenglar á:
Skýrslur undanþágunefndar á heimasíðu Siglingastofnunar.
Sjá nýustu afgreiðslur undanþágunefndar
Nýjar starfsreglur undanþágunefndar
Á fundi sínum 3. mars sl. samþykkti undanþágunefnd nýjar starfsreglur. Í undantekningartilfellum og þegar menn með tilskilin skírteini vantar til starfa getur undanþágunefnd, telji hún að öryggi mannslífa, eigna eða umhverfis verði ekki stefnt í hættu, veitt tilteknum manni undanþágu til að gegna stöðu á tilteknu skipi í tiltekinn tíma hafi hann ekki tilskilin réttindi.
Í nýjum starfsreglum undanþágunefndar felst m.a.:
- undanþága er ekki veitt nema auglýst hafi verið eftir réttindamanni
- sá einn getur fengið undanþágu sem hefur næstu lægri réttindi
- undanþága er að jafnaði veitt til mánaðar í senn
- skráning í tilskilið nám og framvinda í námi er skilyrði undanþágu, það á þó ekki við
um þá sem fæddir eru árið 1960 og fyrr ef þeir hafa fengið a.m.k. tvær undanþágur
undanfarin 2 ár í stöðuna.
- ekki er veitt undanþága til starfa á skip, þar sem mönnunarnefnd hefur samþykkt
frávik frá mönnunarreglum, nema sótt sé um undanþágu í stöðu sem frávikið tekur
til.
Sjá starfsreglur undanþágunefndar hér