Undanþága kærð
Undanþágunefnd er skipuð og starfar samkvæmt lögum nr. 112 frá 1984, um atvinnuréttindi skipstjórnarmanna á íslenskum skipum og lögum nr. 113 frá 1984 um atvinnuréttindi vélfræðinga, vélstjóra og vélavarða á íslenskum skipum.Ef skortur er á mönnum með nægileg réttindi til skipstjórnar eða vélstjórnar er heimilt að veita manni, sem ekki fullnægir skilyrðum laga þessara, undanþágu til starfa á tilteknu skipi eða tiltekinni gerð skipa um takmarkaðan tíma, þó eigi lengur en 6 mánuði í senn, og skal viðkomandi útgerðarmaður eða skipstjóri sækja um undanþáguna.
Verkferli kæru
- Kæra þarf undanþáguveitingu.
Leiki rökstuddur grunur á að vélstjóri á undanþágu hafi verið ráðinn í pláss sem réttindamaður sóttist eftir er hægt að kæra ráðninguna til undanþágunefndar. - Koma þarf kæru til undanþágunefndar.
Ljóst þarf að vera hver sækist eftir plássinu.
Skilyrði þess að kæra sé tekin fyrir er að nafngreindur vélstjóri með réttindi til að gegna umræddri stöðu sækist eftir stöðunni. - Undanþágunefnd og þar með talinn fulltrúi VM geta ekkert aðhafst lýsi réttindamaður sig ekki tilbúinn til að gegna starfinu.