Innheimta iðgjalda:
Sameinaði lífeyrissjóðurinn, Borgartúni 30, 105 Reykjavík sér um alla innheimtu gjalda VM nema þeirra félagsmanna sem eru á sjó. Rafrænar skilagreinar eru á www.lifeyrir.is , netpóstur skilagreinar@lifeyrir.is Bankareikningur: 0526-26-800, kt: 620492-2809, Sími: 510 5000, fax: 510 5010 grænt númer: 800 6865
VM–Félag vélstjóra og málmtæknimanna sér um innheimtu gjalda vegna félagsmanna sem eru á sjó.
Hægt er að senda skilagreinar í pósti, á faxi eða með tölvupósti á skilagrein@vm.is.
VM – Félag vélstjóra og málmtæknimanna,
Stórhöfða 25, 110 Rvk. Sími: 575 9800 Fax: 575 9809,
kt. 530169-5299 Bankareikningur: 0323 – 26 – 569
(F 421) Félagsgjald allra félagsmanna VM er 0,8% af heildarlaunum.
(S 421) Styrktar- og sjúkrasjóður:
Samkvæmt almennum kjarasamningum VM við Samtök atvinnulífsins ber vinnuveitanda að greiða 1% af heildarlaunum í Styrktar- og sjúkrasjóð VM.
Fyrir vélstjóra á fiskiskipum ber vinnuveitanda að greiða 0,75% af heildarlaunum.
Fyrir vélastjóra á kaupskipum ber vinnuveitanda að greiða 0,5% af heildarlaunum.
Í sérkjarasamningum nokkurra fyrirtækja og stofnana eru aðrar prósentutölur.
(O 421) Orlofssjóður:
Samkvæmt kjarasamningum VM ber vinnuveitanda að greiða a.m.k. 0,25% af heildarlaunum í orlofssjóð VM. Undantekningar eru í sérkjarasamningum nokkurra fyrirtækja og stofnana.
(E 421) Fræðslusjóður VM:
Félagsmenn VM geta samið um sérstakar greiðslur í fræðslusjóð VM í persónubundnum samningum.
Fyrir vélfræðinga sem starfa á rammasamningi ber vinnuveitanda að greiða 1% af heildarlaunum, nema samið hafi verið um annað.
Í samningum við ýmis fyrirtæki og stofnanir er kveðið á um greiðslur í fræðslusjóð allt að 1% af heildarlaunum.
Endurmenntunargjald til Iðunnar- fræðsluseturs
E 460 málm– og véltæknigreinar E 463 netagerð
Greiða ber 0,4% af launum í endurmenntunargjald vegna þeirra sem starfa samkvæmt kjarasamningum við Samtök atvinnulífsins svo og þeirra sem starfa á samningum fyrir vélstjóra í frystihúsum og verksmiðjum.
Starfsendurhæfingarsjóður - innheimtist af lífeyrissjóði
Samkvæmt kjarasamningum VM ber atvinnurekanda að greiða í Starfsendurhæfngarsjóð af starfsmönnum.
Gjaldið er 0,13% og greiðist með lífeyrisiðgjöldum til viðkomandi lífeyrissjóðs en ekki með félagsgjöldum til VM.