Atvinnurekanda er skylt að láta starfsmanni í té skriflega staðfestingu á ráðningu og ráðningarkjörum, annað hvort með sérstöku stöðluðum ráðningarsamningi eða gera við hann skriflegan ráðningarsamning.
Samninga skal gera innan tveggja mánaða frá því að starfsmaður hóf störf og hvílir þessi skylda á atvinnurekanda.
Ástæða er til að hvetja alla félagsmenn til að gera skriflega ráðningarsamning því með því móti liggja allar upplýsingar fyrir ef til ágreinings kemur um kaup og kjör.
Ráðningarsamningur verður að vera í samræmi við kjarasamning því öll ákvæði í ráðningarsamningi sem kveða á um lakari rétt launamanns en gildandi kjarasamningar segja til um er ógild samkvæmt 1. gr. laga um starfskjör launafólks nr. 55/1980. Að sjálfsögðu er leyfilegt að semja um betri kjör en kjarasamningar gera ráð fyrir.
Í ráðningarsamningi skal tilgreina eftirfarandi atriði:
- Samningsaðilar, þ.e. nöfn starfsmanns og fyrirtækis
- Vinnustaður og heimilisfang vinnuveitanda
- Titill, staða, tegund starfs eða stutt starfslýsing
- Upphaf starfs
- Lengd ráðningar sé hún tímabundinn
- Orlofsréttur
- Uppsagnarfrestur
- Mánaðar- eða vikulaun
- Lengd venjulegs vinnudags eða vinnuviku og starfsstöð
- Lífeyrissjóður starfsmanns
- Eftir atvikum, gildandi kjarasamningur eða sá samningur sem lagður er til grundvallar persónubundnum samningi
- Verkalýðsfélag starfsmanns
Sýnishorn af stöðluðum ráðningasamningi
Um persónubundna samninga