Mikilvægi þjónustu og félagsins.

Hlutverk VM er viðamikið. Það felst í stöðugum samskiptum við vinnumarkaðinn, stjórnvöld og menntastofnanir. VM leggur áherslu á að á vinnumarkaðnum fara saman hagsmunir vinnuveitenda og launþega. VM eru ábyrg samtök sem bæði vilja og geta tekið á ábyrgan hátt þátt í þeim breytingum sem framundan eru í samfélagi á hraðri þróun. 


Félagsmenn VM hafa fjölbreytta menntun og þjálfun á sviði vélstjórnar og vélaviðgerða, málmsmíði og netagerðar.

Vélstjórn og viðgerðir

Vélvirkjar vinna einkum við uppsetningu, viðhald, viðgerðir og þjónustu véla og tæknibúnaðar skipa, vinnslustöðva, vinnuvéla, verksmiðja, orkuvera og orkuveitna. 

Vélstjórar starfa bæði á sjó og í landi og sinna þar fjölbreyttum störfum. Kröfur til menntunar vélstjóra og vélfræðinga á sjó eru bundin í lög. Vélstjórnarmenntun er blanda af tækni- og verknámi og spannar mjög breytt svið. Vélstjórar og vélfræðingar hafa þekkingu á vélfræði, rafvirkjun, kælitækni, stýri- og stillitækni og fleiru. Vegna breiðrar menntunar sinnar og víðtækrar þekkingar eru þeir víða eftirsóttir starfskraftar. Oftast vinna þeir við vélgæslu og eftirlit í verksmiðjum, iðnfyrirtækjum eða orkuverum en einnig við stjórnun og rekstur fyrirtækja. Réttindi vélstjóra á sjó eru vel afmörkuð. - hlekkur í töflu.

Vélfræðingar starfa bæði á sjó og í landi. Þeir hafa lokið 4. stigi vélstjórnarnáms og sveinsprófi í vélvirkjun eða sambærilegri iðngrein. Vélfræðingar hafa þekkingu á vélfræði, rafvirkjun, kælitækni, stýri- og stillitækni og fleiru. Eftir tiltekinn tíma á sjó hafa þeir öðlast rétt til að starfa á skipum með ótakmarkaða vélastærð. Starf vélfræðinga á sjó felst í viðhaldi, eftirliti og umsjón með öllum vélbúnaði um borð. Í landi eru vélfræðingar víða eftirsóttir vegna breiðrar menntunar sinna og starfa einkum hjá orkufyrirtækjum, í versmiðjum, stjóriðjum og víðar.

Málmsmíði

Blikksmiðir vinna bæði innan og utan dyra. Í blikksmiðju smíða þeir alla hluti loftræstikerfis og setja síðan upp á byggingarstað. Utanhúss vinnur blikksmiður við að leggja klæðningar á þök og veggi, auk þess að smíða og ganga frá þakbrúnum og öðrum vandasömum byggingarhlutum. Þeir nota flóknar skurðar-, beygju- og völsunarvélar með tölvustýringu sem oft taka á móti teikningum úr tölvu. Blikksmiðir kunna skil á virkni tölvustýrðs búnaðar í loftræstikerfum og koma fyrir skynjara og nema fyrir hita- og rakastig á réttum stöðum.

Rennismiðir starfa aðallega í vélsmiðjum og öðrum málmiðnaðarfyrirtækjum og smíða málmhluta í vélbúnað og til framleiðslu í vélar og tæki sem notaðar eru til sjós og lands. Þeir hanna, forma og móta ýmsa málmhluti og nota aðallega til þess rennibekk, fræsivél og súluborvél. Starf rennismiðs við tölvurennibekk felst í innstillingu og forritun vélanna svo og gæðaeftirliti og mælingum á framleiðslunni.

Stálsmiðir taka þátt í að smíða skip, brýr, tanka eða önnur stór mannvirki. Auk stórra verkefna smíða stálsmiðir margs konar málmhluti sem notaðir eru til sjós og lands. Stálsmíði skiptist í þrjú sérsvið: stálskipasmíði, stálmannvirkjagerð og málmsuðu. Stálskipasmiðir vinna við byggingu og viðhald stálskipa. Stálmannvirkjasmiðir vinna við byggingu og viðhald stálgrindahúsa, mastra, brúa og vélahluta. Málmsuðumaður vinnur, eins og nafnið bendir til, aðallega við málmsuðu, en það er faggrein í örri þróun og miklar kröfur eru gerðar til.

Málmsuðumenn starfa í fyrirtækjum þar sem málmsuða er notuð sem samsetningaraðferð. Þeir fást við almenn málmsuðustörf og sérhæfða málmsuðu þar sem krafist er hæfnisprófs. Þeir undirbúa suðustað með tilliti til umhverfis- og öryggisþátta og vinna eftir skilgreindum suðuferilslýsingum þar sem þess er krafist.

Málmsteypumenn og mótasmiðir vinna oftast í málmsteypufyrirtækjum. Þeir annast framleiðslu steyptra hluta úr málmum og málmblöndum jafnt véla- og tækjahluta til frekari vinnslu sem og fullbúinna hluta til notkunar, svo sem potta, panna og ýmiss konar listgripa. Mótasmiðir búa til fyrirmynd af þeim hlut sem á að steypa, annaðhvort samkvæmt teikningu eða eftir öðrum hlut.

Netagerð

Netagerðarmenn starfa á netaverkstæðum og um borð í fiskiskipum við hönnun, framleiðslu, viðhald og viðgerðir á veiðarfærum.

 



Leit

Leitarvél

Font size

Stórhöfða 25 - 110 Reykjavík - Sími 575 9800
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli