Mikilvægi þjónustu og félagsins.

Hlutverk VM er viðamikið. Það felst í stöðugum samskiptum við vinnumarkaðinn, stjórnvöld og menntastofnanir. VM leggur áherslu á að á vinnumarkaðnum fara saman hagsmunir vinnuveitenda og launþega. VM eru ábyrg samtök sem bæði vilja og geta tekið á ábyrgan hátt þátt í þeim breytingum sem framundan eru í samfélagi á hraðri þróun. 


VM, er meðal stærstu fag- og stéttarfélaga landsins.

Vélstjórar og málmiðnaðarmenn eiga margt sameiginlegt bæði í námi og á vinnumarkaði. Námið skarast að stórum hluta og t.d. er iðnmenntun á sviði vélvirkjunar, vélsmíði og stálsmíði hluti af vélfræðinámi. Auk þess starfa málmiðnðarmenn, vélstjórar og vélfræðingar iðulega á sömu vinnustöðum þar sem starfssvið þeirra skarast.

Starfsemi stéttarfélaga í dag er að verða býsna flókin einfaldlega vegna þess að samfélagið okkar verður sífellt flóknara. Alþingi er allt að því daglega að setja ný lög eða að breyta þeim sem fyrir eru. Öll þessi lagasetning hefur áhrif á líf borgaranna og um leið á starfsemi stéttarfélaga. Það segir sig sjálft að þeir starfsmenn stéttarfélaga sem vilja láta taka sig alvarlega verða að kynna sér þau lög og þær breytingar á eldri lögum sem bæði beint og óbeint varða störf þeirra og starfsemi. Þess utan eru mörg þingmál þess efnis að þau snerta ákveðna hópa innan VM alveg sérstaklega. Þar má nefna lög um stjórn fiskveiða sem hafa bein áhrif á kjör sjómanna og þá um leið á kjör vélstjóra fiskiskipa. Lög um iðnmenntun sem hafa bein áhrif á störf og starfskjör iðnaðarmanna almennt og síðast en alls ekki síst má nefna lög um atvinnuréttindi vélstjóra, vélfræðinga og vélavarða sem ráða á nokkurn hátt kjörum þessara manna.

Að öllu þessu skoðuðu er alveg ljóst að stéttarfélög framtíðarinnar þurfa að hafa í sinni þjónustu vel menntað starfsfólk en ekki endilega eigin félagsmenn þótt þeir séu vel menntaðir og miklir fagmenn hver á sínu sviði; það reynir ekki á þessháttar fagmennsku í störfum stéttarfélaganna nema þá að mjög litlu leyti. Stéttarfélag þarf í sínum rekstri að tryggja að tekjunum sé vel varið með hagsmuni eigandanna, félagsmannanna, að leiðarljósi.



Leit

Leitarvél

Font size

Stórhöfða 25 - 110 Reykjavík - Sími 575 9800