Mikilvægi þjónustu og félagsins.

Hlutverk VM er viðamikið. Það felst í stöðugum samskiptum við vinnumarkaðinn, stjórnvöld og menntastofnanir. VM leggur áherslu á að á vinnumarkaðnum fara saman hagsmunir vinnuveitenda og launþega. VM eru ábyrg samtök sem bæði vilja og geta tekið á ábyrgan hátt þátt í þeim breytingum sem framundan eru í samfélagi á hraðri þróun. 


Félagsmenn

Innganga

Umsækjendur um félagsaðild þurfa að skila inn, á skrifstofu félagsins, formlegri undirritaðri inntökubeiðni.

Stjórn félagsins er þó heimilt að hafa annan hátt á eftir atvikum.

Umsóknir sem uppfylla kröfur félagsins um inntöku eru staðfestar af félaginu og bréf og félagsskírteini sent til umsækjanda.

Leiki vafi á hvort umækjandi uppfylli kröfurnar tekur stjórn félagsins umsóknina fyrir.

Fullgildir félagsmenn

Fullgildir félagar eru þeir einir sem hafa sótt um inngöngu í félagið og greitt hafa félagsgjald.

Aukafélagar

Aukafélagar eru þeir sem greiða til félagsins en óska ekki formlega eftir inngöngu.

Aukafélagar hafa sömu réttindi og aðganga að sjóðum og fullgildir félagar. Aukafélagar hafa ekki atkvæðarétt og kjörgengi.

Úrsögn

Úrsögn úr félaginu þarf að vera skrifleg og skal henni skilað til skrifstofu félagsins ásamt félagsskírteini.

Umsóknareyðublað


Leit

Leitarvél

Font size

Stórhöfða 25 - 110 Reykjavík - Sími 575 9800
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli