Mikilvægi þjónustu og félagsins.

Hlutverk VM er viðamikið. Það felst í stöðugum samskiptum við vinnumarkaðinn, stjórnvöld og menntastofnanir. VM leggur áherslu á að á vinnumarkaðnum fara saman hagsmunir vinnuveitenda og launþega. VM eru ábyrg samtök sem bæði vilja og geta tekið á ábyrgan hátt þátt í þeim breytingum sem framundan eru í samfélagi á hraðri þróun. 


Í VM er formaður kjörinn til fjögurra ára í senn en stjórnarmenn og varamenn til tveggja ára. Kosið er með póstkosningu um einstaklinga og sér sérstök uppstillinganefnd um að stinga upp á félagsmönnum til kjörs sem endurspegla breidd félagsins. Allir fullgildir félagsmenn geta boðið sig fram til stjórnar og varastjórnar hafi þeir stuðning 20 fullgildra félagsmanna. Koma þarf framboði á framfæri á sérstökum félagsfundi uppstillinganefndar sem haldinn er vegna stjórnarkjörs.

Sérstakt fulltrúaráð er einnig starfandi hjá félaginu. Hlutverk þess er að mynda öflugt bakland stjórnar við félagsmenn og fá fleiri félagsmenn að hugmyndavinnu um þróun og starfsemi félagsins.

Gert er ráð fyrir að sett verði upp sérstök kjaranefnd sjómanna. Kjaranefndin er fastanefnd og starfar allt árið. Hlutverk hennar er þríþætt:

  1. Að fjalla um hagsmunamál sjómanna innan félagsins og gera tillögur að afgreiðslu þeirra í stjórn.
  2. Að fylgjast með kjörum sjómanna og bera saman við kjarþróun hjá öðrum hópum.
  3. Að annast kjarasamninga sjómanna.

Heimilt er að stofna aðrar sambærilegar kjaranefndir.

Þriggja manna stjórnir eru einnig kostnar á aðalfundi fyrir sérsjóði félagsins; Styrktar- og sjúkrasjóð, Fræðslusjóð og Orlofssjóð.

VM Fréttir

halldor | 02.02.12
Undanfarin ár hefur VM veitt 20 útskriftarnemum styrki að upphæð kr. 100.000 hver.




Pistlar

gudmundur | 19.01.12

Forsendur kjarasamninga.

Eitt af þeim brýnu verkefnum sem verður að fara í með forgangi, er að skuldamálum einstaklinga og fjölskyldna verði lokið sem fyrst. Þeirri miklu óvissu sem þessir aðilar eru í verði eytt og þeir fái að vita sína stöðu. Það er best fyrir alla að komast á hreint borð með sín mál og geta hafið nýtt upphaf fram á við.

 

 

 



Leit

Leitarvél

Font size

Stórhöfða 25 - 110 Reykjavík - Sími 575 9800
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli