Tengiliðir VM og hlutverk þeirra
Tengiliðir VM eru m.a. félaginu til aðstoðar við að setja á fundi á sínu félagssvæði, aðstoða við rekstur orlofshúsa, afla nýrra félagsmanna, koma með tillögur um hvernig efla megi starfssemi VM á félagssvæði sínu og leggja ársfjórðungslega til efni á heimasíðu og í blöð.
Tengiliðir VM eru ekki opinberir talsmenn VM og geta ekki skuldbundið félagið fjárhagslega.
Trúnaðarmenn og hlutverk þeirra
Starfsmönnum er heimilt að kjósa einn trúnaðarmann á vinnustað þar sem vinna 5 - 50 starfsmenn en tvo þar sem vinna fleiri. Trúnaðarmanni er ætlað að gæta þess, að samningar séu haldnir á vinnustaðnum og lög ekki brotin á starfsfólki. Hann er tengiliður milli stéttarfélags og starfsfólks en einnig við atvinnurekanda. Trúnaðarmaður getur auðveldað samskipti milli þessara aðila og gert bæði starfsfólki og stjórnendum mikið gagn, enda á hann jafnan greiða leið að öllum upplýsingum varðandi samninga um kaup og kjör og hvaðeina sem máli kann að skipta.Lög um stéttarfélög og vinnudeilur
Hlutverk trúnaðarmanns, samkvæmt 9. gr.laga 80/1938, er að gæta þess að gerðir samningar séu haldnir af atvinnurekanda og fulltrúum hans og að ekki sé gengið á félagslegan eða borgaralegan rétt verkamanna. Með þessu er átt við öll réttindi samkvæmt lögum eða reglum sem varða persónuleg réttindi manna, en það eru þau réttindi sem eru svo nátengd andlegu eða líkamlegu lífi manna að þau verða ekki frá því greind. Einnig má atvinnurekandi að sjálfsögðu ekki hrófla við neins konar fjárréttindum starfsmanna. Fjárréttindi er réttur yfir eða til fémæta, það er gæða, sem hafa fjárgildi og er þannig háttað í eðli sínu að þau geta greinst frá eiganda þeirra og gengið manna á milli.
Ýmis réttindi opinbers réttarlegs eðlis eru einnig friðhelg svo sem kosningaréttur og kjörgengi og væri atvinnurekanda allskostar óheimilt að meina starfsmönnum að neyta kosningaréttar eða beita þá þrýstingi í þeim efnum.
Kjarasamningar
Fjallað er um verkefni trúnaðarmanna í kjarasamningum en einnig byggist hlutverk hans á þeim venjum sem skapast hafa um störf hans. Trúnaðarmönnum ber að vinna að bættum kjörum vinnufélaga sinna, jafnframt því sem þeir eru talsmenn atvinnuöryggis, félagslegs öryggis, skynsamlegra stjórnarhátta á vinnustöðum og eru samráðsaðilar vegna breytinga á vinnustöðum.
Trúnaðarmaður er einnig fulltrúi stéttarfélagsins á vinnustaðnum og sem slíkur er hann tengiliður félagsins og starfsmannanna.
Verkamenn skulu snúa sér til trúnaðarmanns með umkvartanir sínar og trúnaðarmanni ber að sinna þeim þegar í stað. Honum er í samráði við verkstjóra heimilt að verja eftir því sem þörf krefur tíma til trúnaðarmannsstarfa og skulu laun ekki skerðast af þeim sökum. Trúnaðarmanni er heimilt í tengslum við ágreiningsefni að yfirfara gögn og vinnuskýrslur varðandi ágreiningsefnið og ber honum að fara með þau gögn sem trúnaðarmál. Hann skal á vinnustað hafa aðgang að læstri hirslu og síma í samráði við verkstjóra.
Þar sem trúnaðarmanni er einnig skylt að gæta þess að gerðir vinnusamningar séu haldnir og að ekki sé gengið á félagslegan eða borgaralegan rétt starfsmanna er eðlilegt að hann hafi fullt samráð og samvinnu við stéttarfélagið um ágreiningsefni sem upp koma til að leita leiða um lausn þeirra. Góð samskipti trúnaðarmanns og vinnufélaga eru grundvöllur árangursríks starfs. Nauðsynlegt er að trúnaðarmaður fræði nýliða á vinnustað um helstu reglur og venjur og um verkalýðsfélagið.