Mikilvægi þjónustu og félagsins.

Hlutverk VM er viðamikið. Það felst í stöðugum samskiptum við vinnumarkaðinn, stjórnvöld og menntastofnanir. VM leggur áherslu á að á vinnumarkaðnum fara saman hagsmunir vinnuveitenda og launþega. VM eru ábyrg samtök sem bæði vilja og geta tekið á ábyrgan hátt þátt í þeim breytingum sem framundan eru í samfélagi á hraðri þróun. 


26.08.09

Ráðgjafar í starfsendurhæfingu

Þann 1. ágúst síðastliðinn var Sigrún Sigurðardóttir ráðin sem ráðgjafi sjúkrasjóðs hjá Félagi Vélstjóra og málmtæknimanna.

 Sigrún er með skrifstofu að Stórhöfða 27. Vinnutími er þriðjudaga, föstudaga og annan hvorn miðvikudag. Netfang hennar er sigruns@rafis.is og sigruns@lifeyrir.is Hún er í síma: 580-5228 og 535-6012.

 

Frá því 1. mars 2009 hefur Elsa Sigmundsdóttir starfað í 100% starfi sem ráðgjafi hjá sjúkrasjóðum ASÍ stéttarfélaga í Eyjafirði, VM og fleiri landsfélaga.


Elsa er starfmaður Einingar-Iðju og er með aðsetur á skrifstofu félagsins á 2. hæð í Alþýðuhúsinu á Akureyri. Hún er með netfangið elsa@ein.is og síma 460 3600.

Aðrir ráðgjafar á landsbyggðinni:

 Svæði  Nafn ráðgjafa  Staðsetning  Netfang Sími 
Suðurland Ágústa Guðmarsdóttir Austurvegi 56, 800 Selfoss virk@sudurland.is 4805000
Vestmanna-eyjar Hrefna Óskarsdóttir Miðstræti 11, Vestmannaeyjum starfsorka@internet.is 5343965
Austurland Ragnheiður Kristianssen Tjarnarbraut 39b, 700 Egilsstöðum
Búðareyri 1, 735 Reyðarfirði
rk@starfa.is 4712937
Vestfirðir Fanney Pálsdóttir Pólgata 2, Ísafirði virk@verkvest.is 4563190
NV-land Sveinn Allan Morthens Faxatorg 1, 550 Sauðárkróki starfsendurh@skagafjordur.is

4556160

8636003

Akranes Björg Bjarnadóttir Sunnubraut 13, 300 Akranes virk@vlfa.is 4309904
Reykjanes Guðni Erlendsson Krossmóar 4, Reykjansebæ virk@vsfk.is 4213050

Um er að ræða samvinnuverkefni stéttarfélaganna og Virk, Starfsendurhæfingarsjóðs.

Hlutverk Starfsendurhæfingarsjóðs er að draga markvisst úr líkum á því að launafólk hverfi af vinnumarkaði vegna varanlegrar örorku, með aukinni virkni, eflingu endurhæfingar og öðrum úrræðum.

Hlutverk ráðgjafa  er að veita einstaklingum aðstoð við að viðhalda og efla virkni til vinnu. Hann býður öllum félagsmönnum sem sækja um dagpeningagreiðslur hjá sjúkrasjóði upp á þjónustu og aðstoð, einnig þeim félagsmönnum sem geta ekki eða eiga erfitt með að sinna sínum störfum eins og er vegna heilsu. Það geta verið einstaklingar sem eru í veikindaleyfi eða jafnvel ennþá í starfi.

Stuðningurinn tekur mið af þörfum og væntingum hvers og eins. En hér eru nokkur dæmi um þann stuðning sem stendur félagsmönnum til boða: 

  • Ráðgjöf og hvatningu sem tekur mið af aðstæðum einstaklings
  • Mat á starfshæfni sem tekur mið af bæði heilsufarslegum og félagslegum þáttum.
  • Aðstoð við gerð og eftirfylgni einstaklingsbundinnar áætlunar um aukna virkni, heilsueflingu og endurhæfingu.
  • Aðstoð og leiðbeiningar til að tryggt sé að viðkomandi einstaklingur fái það sem honum ber innan kerfisins.
  • Aðstoð frá sérfræðingum eftir mat á stöðu einstaklings hverju sinni. Hér getur t.d. verið um að ræða aðstoð lækna, sálfræðinga, iðjuþjálfa, sjúkraþjálfa, félagsráðgjafa, náms- og starfsráðgjafa o.s.frv.
  • Aðstoð í formi stuðnings til náms sem hefur það að markmiði að auka vinnugetu einstaklings.
  • Aðstoð í formi skipulagðrar starfsendurhæfingar þar sem einstaklingurinn, atvinnurekandinn og mismunandi fagaðilar vinna saman við að finna leiðir til aukinnar vinnugetu.

Sjá nánar um Starfsendurhæfingu á vef VIRK. www.virk.is

 




Leit

Leitarvél

Font size

Stórhöfða 25 - 110 Reykjavík - Sími 575 9800
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli