Mikilvægi þjónustu og félagsins.

Hlutverk VM er viðamikið. Það felst í stöðugum samskiptum við vinnumarkaðinn, stjórnvöld og menntastofnanir. VM leggur áherslu á að á vinnumarkaðnum fara saman hagsmunir vinnuveitenda og launþega. VM eru ábyrg samtök sem bæði vilja og geta tekið á ábyrgan hátt þátt í þeim breytingum sem framundan eru í samfélagi á hraðri þróun. 


27.01.2012

TIL VINNU

Nú liggja fyrir tillögur um öflugar aðgerðir sem eiga að tryggja allt að 1.500 atvinnuleitendum starfstengd úrræði, til viðbótar við þau úrræði sem í boði hafa verið. Sérstök áhersla er lögð á hvata og úrræði fyrir langtímaatvinnulausa. Átaki með yfirskriftinni „TIL VINNU“ verður hrint af stað þegar í byrjun árs 2012. Aðgerðir í þágu langtímaatvinnulausra munu hafa forgang í þessu átaki.
Lesa meira

23.01.2012

Yfirlýsing samninganefndar ASÍ vegna endurskoðunar kjarasamninga

Samninganefnd ASÍ hefur í dag ákveðið að segja ekki upp gildandi kjarasamningum þrátt fyrir vanefndir stjórnvalda á þeim fyrirheitum sem gefin voru við gerð þeirra. Ljóst er að mikill meirhluti aðildarfélaga Alþýðusambandsins telur að mikil verðmæti liggi í þeim launahækkunum sem kjarasamningarnir tryggja og að ekki sé forsvaranlegt að grípa til uppsagna þeirra við núverandi aðstæður. Þetta er niðurstaða umfangsmikillar umræðu sem átt hefur sér stað um forsendur kjarasamninga og framgang þeirra undanfarnar tvær vikur meðal samninganefnda rúmlega 50 aðildarfélaga ASÍ. Aðeins þrjú þeirra vildu segja upp samningum.
Lesa meira

18.01.2012

Krossgáta - lausnarorðið er ÓSKAÐIR

Dregið hefur verið í innsendum lausnum í krossgátu VM sá heppni er Lúðvík Davíðsson, Melagötu 5, Neskaupstað og fær hann að launum vetrarhelgaleigu í einu af orlofshúsum VM. VM óskar Lúðvík hjartanlega til hamingju.
Lesa meira

18.01.2012

Nýjar íbúðir í Mánatúni

Nýju íbúðirnar okkar að Mánatúni 3 voru til sýnis núna á laugardaginn 14. janúar á milli kl 13 og 16. Töluvert rennirí félagsmanna var í íbúðirnar þar sem boðið var upp á Kaffi og kleinur á meðan íbúðirnar voru skoðaðar í krók og kima.
Lesa meira

18.01.2012

Ekki ástæða til uppsagnar kjarasamninga

Fundur stjórnar, varastjórnar og fulltrúaráðs VM, haldinn þriðjudaginn 17. janúar 2012, ályktaði að forsendur kjarasamninga haldi og telur því ekki ástæðu til uppsagnar við ákvörðun endurskoðunar kjarasamninga 20. janúar n.k.
Lesa meira

17.01.2012

Styrkir til vinnustaðanáms eða starfsþjálfunar

Mennta- og menningarmálaráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um styrki til fyrirtækja eða stofnana sem taka nemendur í vinnustaðanám. Markmið styrkjanna er að hvetja fyrirtæki eða stofnanir til þess að taka við nemendum sem stunda vinnustaðanám sem hluta af námi á framhaldsskólastigi og gera þeim kleift að ljúka tilskildu vinnustaðanámi samkvæmt aðalnámskrá framhaldsskóla.
Lesa meira

16.01.2012

Könnun á viðhorfi félagsmanna VM til aðildar að ASÍ

Á aðalfundi VM - Félags vélstjóra og málmtæknimanna þann 26. mars 2011 var samþykkt tillaga þess efnis að félagið kannaði viðhorf félagsmanna til aðildar félagsins að Alþýðusambandi Íslands.
Lesa meira



Leit

Leitarvél

Font size

Stórhöfða 25 - 110 Reykjavík - Sími 575 9800
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli