19.01.2012
Forsendur kjarasamninga.
Eitt af þeim brýnu verkefnum sem verður að fara í með forgangi, er að skuldamálum einstaklinga og fjölskyldna verði lokið sem fyrst. Þeirri miklu óvissu sem þessir aðilar eru í verði eytt og þeir fái að vita sína stöðu. Það er best fyrir alla að komast á hreint borð með sín mál og geta hafið nýtt upphaf fram á við.Lesa meira
21.12.2011
Jólapistill 2011
VM, félagið okkar er grunnurinn að því að okkur farnist vel og við sköpum okkur stöðu í kjaramálum okkar stétta. Sú þjónusta sem félagið er að sinna við félagsmenn þarf að vera góð enda á allur reksturinn að byggjast á þeim sjónarmiðum að við séum þjónustuaðili fyrir félagsmenn.Lesa meira
10.11.2011
Verðum að fá eðlilegar skýringar á verðmyndun á fiski.
Oft er maður undrandi á mati fjölmiðla hvað er fréttnæmt og hvað ekki. Í síðasta tölublaði VM var fjallað um tvö mál. Við hleyptum að gagnrýni á járnhjúp Hörpunnar og síðan skrifaði ég grein um verðlagningu á fiski. Ég hefði haldið að fjölmiðlar ættu ekki síður að hafa áhuga á umfjöllun um verðlagsmál á fiski og þeim mikla mun sem er hér og erlendis á sama fiskinum úr sömu fiskitorfunni, en þeirri gagnrýni sem við hleyptum að um tónlistar- og ráðstefnuhúsið Hörpuna.Lesa meira
30.09.2011
Öryggismál vélstjóra á sjó
Eiginkonur vélstjóra á sjó hafa haft samband við mig og lýst yfir áhyggjum sínum varðandi öryggi manna sinna verði þyrlureksturinn skertur, svo að ekki verði hægt að sinna flotanum. VM mun halda áfram á fullu að leita lausna í að tryggja lágmarks þyrluþjónustu fyrir sjómenn meðal annars með að finna leiðir til að tryggja fjármögnun á þyrlum fyrir LG.Lesa meira
08.08.2011
Áframhaldandi óvissa!
Að lokum þá kalla ég eftir því að allar stjörnurnar í rekstri fyrirtækja sem riðu um héröð í uppsveiflunni, allt þóttust kunnu og geta betur en aðrir, komi fram og hefji uppbyggingu atvinnulífsins, ef þeir kunna þá eitthvað annað en að fá lánaða peninga út á ekki neitt.Lesa meira
04.06.2011
Á miðju ári 2011.
Þing VM um lífeyrisjóðina tókst mjög vel og hvetur okkur til að halda áfram á þessari braut, taka fyrir málefni félagsmann á okkar forsendum og kalla fram það sem við teljum vera kjarna málsins eða það sem við þurfum að fá svör við.Lesa meira
06.05.2011
Kjarasamningur!
Ég hvet félagsmenn að gefa sér tíma og kynna sér innihald kjarasamningsins, því fljótlega verða send út kjörgögn til að kjósa um hann.Lesa meira
30.04.2011
Sýnum samstöðu.
Í næstu viku verður öðrum kjarasamningum VM vísað til Ríkissáttasemjara og farið að undirbúa kosningar um vinnustöðvun félagsmanna VM sem mun væntanlega koma til framkvæmdar síðari hluta maí.Lesa meira
16.04.2011
Aðför að lýðræðinu í landinu.
Ég skora á þessa einstaklinga í stjórn og framkvæmdastjórn SA að hætta þessu ólöglega ofbeldi og taka þátt í uppbyggingunni sem almenningur í þessu landi vill koma sem fyrst af stað með skynsömum lausnum.Lesa meira
22.02.2011
Fer að sjást til lands við gerð kjarasamninga?
Á fundum með félagsmönnum, trúnaðarmönnum og samninganefndum VM hefur það komið fram, að það er hræðsla við að farið verði inn á leið sem við þekkjum vel, þó full þörf sé á því. Háar prósentuhækkanir sem fara beint út í verðlagið, með verðbólguskoti sem skilur okkur eftir i verri stöðu en þegar skrifað er undir kjarasamninginn.Lesa meira
31.01.2011
Nú er rétti tíminn??
Það er skoðun mín að á hverjum tíma verði að vera svigrúm í hagkerfinu til breytinga á vægi launa milli atvinnugreina, atvinnugreinarnar eiga að fá svigrúm til þess, jafnvel innan samræmdar launastefnu á almennum vinnumarkaði. Ég sé ekkert því til fyrirstöðu að þessi lagfæring verði framkvæmd í kjarasamningum milli VM og atvinnurekenda í vél-og málmtækninni, sem eru að blæða út vegna skorts á fagfólki.Lesa meira
21.12.2010
Horfum bjartsýn fram á veginn
Er ekki komið að því að Alþingi taki strax einn til tvo daga til að ræða það hvað þingið þarf að gera sameiginlega til að liðka fyrir gerð komandi kjarasamninga og bera sameiginlega ábyrgð á þeim aðgerðum. Það er hægt að keyra samfélagið í þrot, í endalausum prinsippum og sérhagsmunapoti.Lesa meira
06.12.2010
Siðferði Nýja Íslands
Það er hægt að rífast um það endalaust hvort mæling á raunvirði fjármagns sé röng. Ég á erfitt með að sjá það fyrir mér að einhver sem vill raunmælingu á verðmæti fjármuna burt hefði lánað mér 1 únsu af gulli fyrir nokkrum árum og sætt sig við að ég borgaði honum ½ únsu í dag og við værum kvitt.Lesa meira
12.11.2010
Undirbúningur kjarasamninga.
Eftir að unnið hefur verið úr gögnum eftir kjararáðstefnu VM, þar sem mjög margar mismunandi áherslur komu fram, lögðu þátttakendur á ráðstefnunni mikla áherslu á að greiðslur umfram lágmarkstaxta kjarasamninga verði festar betur í þeim launum sem þeir semja um við atvinnurekendur.Lesa meira
07.10.2010
Markaðshyggjan á launamarkaði.
VM hefur sent SA og Málmi - félagi fyrirtækja í málm-og skipaiðnaði bréf þar sem farið er fram á það að VM fái viðræður beint við Málm án aðkomu og afskipta SA.Lesa meira
22.09.2010
Kjararáðstefna VM
Það er einlæg ósk mína að sem flestir félagsmenn VM sjái sér fært að mæta á Kjararáðstefnuna og koma sínum sjónarmiðum á framfæri, það fylgir því um leið mikill ábyrgð að taka afstöðu um þá kosti sem eru í stöðunni í dag. Ábyrgð okkar er mikil og getur haft örlagaríkar afleiðingar spilum við ekki rétt úr þeirri stöðu sem við sitjum uppi með í dag.Lesa meira
08.09.2010
Verkfall vélstjóra hjá Hafrannsóknarstofnun
Verkfall vélstjóra á skipum Hafrannsóknarstofnunar á að hefjast á miðnætti næsta föstudag. Samninganefnd ríkisins hefur aftur á móti ákveðið einhliða að skip megi ljúka fyrirfram skipulögðum leiðangri og að verkfall hefjist því í raun ekki fyrr en skipin koma til hafnar.Lesa meira
28.06.2010
Hefur eitthvað breyst?
Eitt sinn heyrði ég máltæki sem heimfært var upp á Færeyinga. „Nógur er tíminn, alltaf kemur meira af honum“ þessi staðreynd er ein af þeim fáu sem við getum gengið út frá í dag og einnig því að reikningarnir koma örugglega inn um lúguna með sínum eindögum.Lesa meira
20.04.2010
Skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis og VM
Ef við sem einstaklingar, ætlum sannarlega að taka þátt í að byggja upp réttlátt samfélag, verðum við að byrja á okkur sjálfum og laga þar til. Það hefur til dæmis lengi verið landlægur andskoti að svíkja undan skatti á Íslandi! Að vinna sem mest svart eða láta vinna fyrir sig, án þess að borga skatt.Lesa meira
31.03.2010
Ágætu félagsmenn
Nú er aðalfundur VM nýafstaðinn og kosningu til stjórnar félagsins lokið. Tillögur laganefndar, sem skipuð var á aðalfundi VM 2008, voru samþykktar. Sú tilraun var gerð í ár, að senda ársskýrsluna til allra félagsmanna þannig að þeir hafi tök á að kynna sér starf félagsins fyrir aðalfundinn og þá vonandi um leið að vekja upp áhuga manna á starfsemi félagsins.Lesa meira