Mikilvægi þjónustu og félagsins.

Hlutverk VM er viðamikið. Það felst í stöðugum samskiptum við vinnumarkaðinn, stjórnvöld og menntastofnanir. VM leggur áherslu á að á vinnumarkaðnum fara saman hagsmunir vinnuveitenda og launþega. VM eru ábyrg samtök sem bæði vilja og geta tekið á ábyrgan hátt þátt í þeim breytingum sem framundan eru í samfélagi á hraðri þróun. 


 

Viðræður standa yfir vegna flestra samninga VM.
Eftirfarandi samningar hafa verið samþykktir 

 

Almennur samningur VM við SA vegna starfa málmiðnaðarmanna, vélstjóra í landi og netagerðarmanna var
undirritaður 5. maí 2011 og samþykktur í atkvæðagreiðslu. Sjá nánar hér

 

Samningur vegna starfa málmiðnaðarmanna hjá Orkuveitu Reykjavíkur var undirritaður þann 1. júní 2011.
Kosningu um samniginn lauk kl. 12:00 á hádegi þann 10. júní og var samningurinn samþykktur.

 

Samningur vegna starfa vélfræðinga hjá Orkuveitu Reykjavíkur var undirritaður þann 6. júní 2011.
Kosningu um samninginn lauk kl. 16:00 þann 14. júní og var samningurinn samþykktur.

 

Samningur vegna starfa vélfræðinga hjá HS orku hf var undirritaður 8. júní.
Kosningu um samninginn lauk kl. 16:00 þann 14. júní og var samningurinn samþykktur.

 

Skrifað var undir samkomulag við LÍÚ um hækkun kauptryggingar og launaliða um 4,25%.
Sjá nýja kaupskrá sem gildir frá 1. júní 2011.

 

Samningur vegna starfa félagsmanna VM hjá Faxaflóahöfnum var undirritaður 9. júní 2011.
Kosning um samninginn var á skrifstofu VM að Stórhöfða 25, Reykjavík.
Samningurinn var samþykktur 4. júlí 2011.

 

Kjarasamningur VM við SA vegna starfa vélstjóra um borð í kaupskipum var undirritaður 24. júní.
Kosning um samninginn stóð yfir til kl. 14:00, föstudaginn 22. júlí 2011. Sjá samning hér
Kjarsamningurinn var felldur með 84,6% atkvæða.
Á kjörskrá voru 41 félagsmaður. Þar af greiddu 26 (eða 63,41%) atkvæði.
Já sögðu 4 (eða 15,38%). Nei 22 (eða 84,62%). Engin auð eða ógild atkvæði. 

 

Kjarasamningur VM við Landsvirkjun var undirritaður 27. júní.
Kosningu lauk á hádegi föstudaginn 8. júlí 2011 og var samningurinn samþykktur.


Kjarasamningur VM við Orkubú Vestfjarða.
Skrifað undir samning 28. júní og kosið um hann að morgni 29. júní. Samningurinn samþykktur


Kjarasamningur milli VM og Landsnets, sem undirritaður var mánudaginn 4. júli 2011, var samþykktur föstudaginn 8. júlí 2011.

 

Skrifað undir kjarasamning VM við Alcan á Íslandi þann 23. ágúst. Kynningarfundur með starfsmönnum verður haldinn fimmtudaginn 25 ágúst og fer kjarasamningurinn síðan í atkvæðagreiðslu. Sjá samning og Fréttabréf túnarðarmannaráðs.

 

Skrifað var undir kjarasamning VM við Launanefnd sveitarfélaga þann 29. september. Samningurinn gildir til 30. september 2014 og ný launatafla gildir frá 1. júní 2011. Eingreiðsla kr. 50.000 greiðist við samþykkt samningsins og önnur greiðsla, kr. 25.000, greiðist 1.febrúar 2012. Uppbygging launatöflu breytist og opnað er á mat á starfsaldri í starfsgrein í stað þess að meta eingöngu starfstíma hjá sveitarfélagi.  Sjá kjarasamning

 



Leit

Leitarvél

Font size

Stórhöfða 25 - 110 Reykjavík - Sími 575 9800
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli