Mikilvægi þjónustu og félagsins.

Hlutverk VM er viðamikið. Það felst í stöðugum samskiptum við vinnumarkaðinn, stjórnvöld og menntastofnanir. VM leggur áherslu á að á vinnumarkaðnum fara saman hagsmunir vinnuveitenda og launþega. VM eru ábyrg samtök sem bæði vilja og geta tekið á ábyrgan hátt þátt í þeim breytingum sem framundan eru í samfélagi á hraðri þróun. 


Reglur um leigu á íbúð Sjúkrasjóðs VM til félagsmanna.

Íbúð Sjúkrasjóðs skal ávalt hafa forgang til útleigu fyrir félagsmenn sem þurfa afnot af henni vegna veikinda eða slysa hans eða nánustu fjölskyldu.
Forgangur að íbúðinni skapast ekki fyrr en um sannarleg veikindi er að ræða, minniháttar læknisaðgerðir og ferðir félagsmanna til lækna teljast ekki veikindi fyrr en vottorð um veikindi er komið fram.

Leigutími getur orðið allt að 30 dagar í einu.                                                                                  

Hafi félagsmenn ekki nýtt sér afnot af íbúðinni vegna veikinda á þriðjudegi, er orlofssjóði heimilt að setja íbúðina í almenna helgarleigu.

Orlofssjóður sér um rekstur og útleigu íbúðarinnar.

Reglur um útleigu skulu endurskoðaðar eftir ár.



Leit

Leitarvél

Font size

Stórhöfða 25 - 110 Reykjavík - Sími 575 9800
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli