Orlofssjóður

Orlofssjóður VM hefur það meginmarkmið að skapa félagsmönnum og fjölskyldum þeirra aðstöðu og færi á að njóta orlofs til hvíldar og hressingar á viðráðanlegu verði. Til að sinna þessu hlutverki á sjóðurinn og rekur orlofsaðstöðu félagsins. Helstu tekjur sjóðsins eru samningsbundin gjöld atvinnurekanda til sjóðsins og leigutekjur.

1. gr. Nafn sjóðsins og aðsetur

  • 1.1. Sjóðurinn heitir Orlofssjóður Félags vélstjóra og málmtæknimanna (VM) og er eign félagsins.
  • 1.2. Sjóðurinn er stofnaður með sameiningu Félags járniðnaðarmanna og Vélstjórafélags Íslands og orlofssjóða þeirra félaga.
  • 1.3. Sjóðfélagar eru þeir sem greitt er, eða greitt hefur verið af, til sjóðsins.
  • 1.4. Heimili sjóðsins og varnarþing er í Reykjavík.

2. gr. Markmið

  • 2.1. Markmið sjóðsins er að skapa félagsmönnum og fjölskyldum þeirra aðstöðu og færi  til að njóta orlofs á fjölbreyttan hátt til hvíldar og hressingar á viðráðanlegu verði.
  • 2.2. Til að sinna þessu hlutverki er sjóðnum heimilt að eiga eða leigja orlofsaðstöðu, greiða hluta kostnaðar við orlofsdvöl eða orlofsferðir, allt eftir ákvörðun sjóðstjórnar.               

3. gr. Tekjur sjóðsins

  • 3.1. Samningsbundin gjöld atvinnurekanda til sjóðsins.
  • 3.2. Leigutekjur.
  • 3.3. Vaxtatekjur.
  • 3.4. Aðrar tekjur er til falla.

4. gr. Stjórn og rekstur sjóðsins

  • 4.1. Félagsstjórn fer með stjórn orlofssjóðs og tilnefnir starfsnefndir í einstök verkefni.
  • 4.2. Stjórn sjóðsins ber alla ábyrgð á fjárreiðum sjóðsins.
  • 4.3. Heimilt er að fela skrif­stofu VM fjár­reiður og um­sjón með sjóðnum.
  • 4.4. Halda skal bók­haldi sjóðsins að­skildu frá öðrum fjár­reiðum félagsins.
  • 4.5. Ávallt skulu liggja fyrir gögn um iðgjaldamánuði vegna hvers félagsmanns og réttindi hans til orlofsaðstöðu.
  • 4.6. Stjórn sjóðsins setur reglur um leigu á orlofsaðstöðu. 

5. gr. Reikningar sjóðsins og endurskoðun

  • 5.1. Reikningar sjóðsins skulu endurskoðaðir af löggiltum endurskoðanda eða endurskoðunarfélagi í samræmi við góða endurskoðunarvenju sem í gildi er á hverjum tíma.
  • 5.2. Reikningsár sjóðsins er almanaksárið. Reikningar sjóðsins skulu lagðir fram áaðalfundi félagsins áritaðir af löggiltum endurskoðanda.
  • 5.3. Í ársreikningi eða skýringum með honum skal sundurliða sérstaklega tekjur og gjöld vegna mismunandi orlofsaðstöðu.
  • 5.4. Um bókhald reikninga og endurskoðun fer að öðru leyti skv. viðmiðunarreglum ASÍ eins og þær eru á hverjum tíma sbr. 3. mgr. 44. gr. laga ASÍ. 

6. gr. Réttindi sjóðfélaga

  • 6.1. Sjóðfélagar ávinna sér rétt til orlofsaðstöðu í hlutfalli við fjölda greiddra félagsgjaldamánaða. Þeir sem greitt hafa félagsgjald í a.m.k. 10 ár áður en þeir hætta störfum vegna aldurs eða örorku ávinna sér rétt samkvæmt ákvörðun stjórnar.
  • 6.2. Hafi skil eða skilagreinar á gjöldum ekki borist í 6 mánuði og greiðsluskylda launagreiðanda sannast ekki á annan hátt, getur réttur til úthlutunar á orlofsaðstöðu fallið niður þar til greiðsla hefst að nýju.
  • 6.3. Réttur til úthlutunar helst þó iðgjöld berist ekki vegna veikinda eða slysa, atvinnuleysis, fæðingarorlofs eða skólagöngu.

7. gr. Afgreiðsla sjóðsins

  • Afgreiðsla sjóðsins skal vera á skrifstofu félagsins. Sjóðurinn greiðir kostnað vegna afgreiðslu- og skrifstofuhalds samkvæmt nánari ákvörðun stjórnar. 

8. gr. Gildistaka og breytingar á reglugerð

  • Reglugerð sjóðsins tekur gildi frá og með 15. október  2006.
  • Breytingar á reglugerð þessari taka því aðeins gildi, að þær hafi hlotið samþykki aðalfundar VM og ræður einfaldur meirihluti atkvæða.

Þannig samþykkt á stofnfundi 14. október 2006.