Verkfallssjóður

1. gr. Lögheimili og varnarþing
Sjóðurinn heitir Vinnudeilusjóður VM – Félags vélstjóra og málmtæknimanna.
Lögheimili hans og varnarþing er í Reykjavík.

2. gr. Verkefni
Tilgangur sjóðsins er að styrkja félagsmenn VM vegna launataps í verkföllum eða verkbönnum eftir því sem hagur sjóðsins leyfir á hverjum tíma. Þó ekki til að standa undir venjulegum kostnaði vegna kjarasamninga.

3. gr. Höfuðstóll
Höfuðstóll sjóðsins miðast við árlegt reikningsuppgjör.

4. gr. Tekjur
Tekjur sjóðsins eru:

    a) 5% af árlegum félagsgjaldatekjum.
    b) Vaxtatekjur.
    c) Gjafir, framlög og styrkir.

5. gr. Stjórn og rekstur
Félagsstjórn VM er stjórn verkfallssjóðs og ákveður hvenær hefja skuli úthlutun úr sjóðnum og hve háar greiðslur skuli vera.
Heimilt er með samþykki lögmæts félagsfundar að veita styrk til einstakra verkalýðsfélaga sem eru í verkfalli eða verkbanni.
Stjórn skal tryggja að fjármagn sé laust til ráðstöfunar ef á þarf að halda.

6. grein
Nú stendur verkfall lengur en 4 vikur og hagur vinnudeilusjóðs er slæmur eftir lausn verkfalls, er þá stjórn heimilt að leggja fyrir félagsfund tillögu um sérstakt aukagjald í allt að 12 mánuði sem innheimta skal með félagsgjöldum. Gjald þetta skal renna óskert til vinnudeilusjóðs. Gjald þetta skal aldrei vera hærri upphæð en sem nemur hálfu félagsgjaldi.

7. grein
Allar umsóknir um styrk úr sjóðnum skulu vera á eyðublöðum er stjórn sjóðsins lætur gera. Umsóknir skulu vera varðveittar í skjalavistunarkerfi VM.

8. grein
Heimilt er félagsmönnum að sækja um styrk úr sjóðnum, er vinnustöðvun eða verkbann hefur staðið yfir í 14 daga. Stjórn sjóðsins getur þó tekið ákvörðun um að stytta þennan tíma.

9. grein
Stjórn sjóðsins skal halda fund fyrir hvert greiðslutímabil, og ákveða hvenær útborgun skal fara fram. Þegar stjórn sjóðsins hefur tekið ákvörðun um styrkveitingu, ber að auglýsa það á skrifstofu félagsins og heimasíðu VM með 2ja sólarhringa fyrirvara. Útborgun skal vera á þann hátt sem stjórn ákveður.

10. grein
Stjórn sjóðsins ákveður upphæð styrkja og skal við það taka mið af stærð sjóðsins, ástandi í samningamálum og fjölda umsókna.  Stjórn er heimilt að setja í starfsreglur takamörkun á greiðslum og réttindaávinnslu.

11. grein
Þeir sem sinna sjálfboðaliðs störfum fyrir félagið í vinnustöðvunum eða verkbönnum skulu ganga fyrir um styrk úr vinnudeilusjóði ef þörf er á forgangsröðun.

12. grein
Heimilt er stjórn að nota fé úr sjóðnum til reksturs vinnustöðvana, svo sem til verkfallsvörslu.

13. grein
Ekki er heimilt að greiða styrki úr sjóðnum eftir lausn vinnudeilu nema  um sé að ræða styrki og eða kostnað tengda vinnustöðvun og styrki til annarra félaga sem eru í vinnustöðvun.

14. grein
Rétt til styrks úr sjóðnum hafa þeir einir sem uppfylla eftirfarandi skilyrði:
Eru fullgildir meðlimir í félaginu og hafa greitt félagsgjald í það minnsta síðustu þrjá mánuði.
Eru taldir skuldlausir við félagið.
Eru ekki í óbættri sök við félagið.

15. grein
Ágreiningur vegna meðferðar sjóðsins skal borinn undir lögmætan félagsfund til úrskurðar.

16. grein
Hætti sjóðurinn störfum eða  lagður niður, ráðstafar aðalfundur félagsins eignum hans.

17. grein
Reikningar sjóðsins skulu endurskoðaðir af endurskoðendum félagsins, birtir með félagsreikningum síðasta árs og bornir undir aðalfund til samþykktar.

18. grein
Reglum þessum má aðeins breyta í samræmi við lög félagsins, sbr. 31. grein laga VM.

Samþykkt á stjórnarfundi 6. nóvember 2014.