Mikilvægi þjónustu og félagsins.

Hlutverk VM er viðamikið. Það felst í stöðugum samskiptum við vinnumarkaðinn, stjórnvöld og menntastofnanir. VM leggur áherslu á að á vinnumarkaðnum fara saman hagsmunir vinnuveitenda og launþega. VM eru ábyrg samtök sem bæði vilja og geta tekið á ábyrgan hátt þátt í þeim breytingum sem framundan eru í samfélagi á hraðri þróun. 


 
 

Akkur, auglýsir eftir umsóknum um styrki vegna úthlutunar 2012. 

Umsóknir þurfa að berast eigi síðar en 2. mars.

 
Sækja um styrk til rannsóknarverkefnis, brautryðjenda- eða þróunarstarfa
 
Sækja um styrk til menningarstarfsemi og listsköpunar
 
 

Akkur, Styrktar- og menningarsjóður VM, úthlutar árlega fjárstyrkjum til rannsóknarverkefna, brautryðjenda- og þróunarstarfa, menningarstarfsemi og listsköpunar. Markmið og verkefni sjóðsins er að styrkja m.a. rannsóknir og annað sem kemur félagsmönnum VM til góða við nám og störf  til lands og sjávar, auk þess að styrkja brautryðjenda- og þróunarstarf sem hefur samfélagslegt gildi svo og menningarstarfsemi og listsköpun.

Stofnfé Akks er um 146 milljónir króna sem fengust við sölu stofnbréfa í Sparisjóði vélstjóra. Gert er ráð fyrir að árlega muni sjóðurinn veita styrki að upphæð 4 - 6 milljónir króna.  Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar má nálgast á skrifstofu VM - Félags vélstjóra og málmtæknimanna, Stórhöfða 25 og á heimasíðu félagsins.

 

Forsaga

Þegar Sparisjóður vélstjóra var stofnaður árið 1961 var hann fyrstu árin til húsa í húsnæði Vélstjórafélags Íslands að Bárugötu 11 í Reykjavík og naut starfskrafta félagsins fyrstu árin. Fyrir þetta hlutverk fyrstu starfsár sjóðsins fékk félagið til eignar 51 stofnbréf í sjóðnum sem síðar fjölgaði í 102 við fjölgun bréfanna.

Þegar stofnbréfin í sparisjóðunum urðu að markaðsvöru seldi félagið 101 bréf sem það fékk 185 milljónir fyrir. Samþykktir sparisjóðanna kveða á um að verðmæti stofnbréfanna sé upphaflegt verð þeirra að viðbættum áföllnum vöxtum frá stofndegi þ.e. þau endurspegli ekki verðmæti sjóðanna líkt og hlutabréf gera.

Það verðmæti sparisjóðanna sem er umfram uppfært verð stofnbréfa þeirra er talið án eiganda og að því beri að skila aftur til samfélagsins. Þess vegna ákvað stjórn Vélstjórafélags Íslands að láta þessa fjármuni renna í sjóð sem síðan styrkti ýmis þjóðþrifamál og verkefni sem hafa samfélagslegt gildi.

Stjórn Akks, kosin á aðalfundi 17. apríl 2009 til 3ja ára. 

Formaður stjórnar sjóðsins skal vera utan félagsins en aðrir í stjórn sjóðsins eru vélstjórnarmenntaðir. Í stjórn félagsins sitja Magnús Jóhannesson, formaður, Helgi Laxdal og Guðmundur Ragnarsson meðstjórnendur. Varamenn eru Páll Magnússon, Heimir Pálmason og Jón Hansson.

 
Lög Akks - styrktar og menningarsjóðs VM  
   
   

 



Leit

Leitarvél

Font size

Stórhöfða 25 - 110 Reykjavík - Sími 575 9800
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli